Þvottahúsið#86 Alda Karen er svo nóg að það hálfa væri nóg

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónulega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðssetningu.Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðsstjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu Ghostlamp starfar í dag ekki aðeins sem ráðgjafi heldur er hún einnig rithöfundur og vinsæll fyrirlesari. Hún reis upp á sjónarsviðið á Íslandi fyrir nokkrum árum með fyrirlestrum sem hún hélt bæði í Hörpunni og í Laugardalshöll fyrir fullu húsi. Hún segist hafa áttað sig á sínum fyrsta fyrilestri hve mikið af markaðsmálum og atvinnuframmistöðu almennt snérist í raun um andlegan þroska og hugrækt.  Í Laugardalshöllinni hélt hún fyrirlestur í kjölfar áfalls innan fjölskyldunar og rann allur ágóði til Pieta samtakana. Eitthvað í því tengt sagði hún í viðtali hjá Íslandi í dag að hún sjálf liði sjálf eins og hún sé fullkomnlega nóg og segi það við sjálfan sig sem einkonar forittun á eigin huga sem svo virðsit virka því Öldu er bókstaflega allir vegir færir. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á fagmenntuðum sálfræðingum sem að tóku málið fyrir og var henni svo mætt í eftirminnilegum Kastljósþætti þar sem fulltrúi félags sálfræðinga Hafrún Kristjánsdóttir mætti Öldu undir umsjón Einars Þorsteinssonar sem nú hefur snúið sér að stjórnmálum. 

Om Podcasten

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.