Þvottahúsið#84 Ingeborg Andersen krukkar í jurtum og plöntum því hún er grasalæknir

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasalæknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vest­rænar grasa­lækn­ing­ar við Uni­versity of West­minster í London. Ingeborg kemur úr fjölskyldu af læknum, afi hennar og pabbi eru læknar og mamma hennar hjúkrunarfræðingur. Það hafi alltaf legið fyrir að hún skuli einnig verða læknir en þegar að nær dróg fann hún að henni fannst námið ekki bara þurrt heldur líka erfitt yfirferðar sökum viss áhugaleysis um námsefnið. Ingeborg talaði um að grasalækningar hafi hér áður fyrr talist sem almenn viska tengt heilsu og líðan, fólk hafi verið í nánari tengingum við náttúruna og máttinn sem í henni býr. Hún vill meina að þessi tenging og vitneskja sé smátt og smátt að tapast.

Om Podcasten

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.