Þvottahúsið#82 Steini í Quarashi STICKS´EM UP!

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en skeitarinn, tónlistarmógúllinn Steinar Fjelsted eða Steini í Quarashi eins og hann er gjarnan kallaður. “Þetta byrjaði samt bara mest með Public Enemy og NWA”“Ég man enþá eftir þessu í dag, þegar að Check your head með Beasty Boys kom út, það breytti bara öllu, tónlistarlega séð, tískulega séð, hugsunarhætti, bara tónlist, breytti bara öllu, heimurinn fór á hliðina. Þetta er örugglega eins og þegar fyrsta Bítlaplatan kom út”“Ég stofnaði mína fyrstu hljómsveit 9 ára, Alcoholic Brothas” Segir hann hlæjandi. Gunnar spyr hann hvort nafnið ætti eftir að rætast og hann svaraði því játandi. Gunnar spurði Steina hver fyrsti íslenski rapparinn hefði verið og hann sagðist halda “að það væri bara Einar Örn eða eitthvað, í Sykurmounum, hann var basicly bara að rappa.”“Það er taktur í mér og tónlist , ég hef rosalega þörf fyrir að gera eitthvað creative, á hverjum einasta degi”Steini byrjaði að skeita og búa til tónlist ungur. Hann talaði um að hafa stofnað sínu fyrstu hljómsveit, The alkoholic brothas þegar hann var 9 ára. það má segja að þetta Urban vibe hafi náð að fanga Steina frá byrjun, einhver taktur sem hann segir að hann hafi fundið þá bæði í skeitinu sem og í beatinu eða takti hip hopsins. albumm.is

Om Podcasten

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.