Davíð Karl, hann gæti fokkað þér upp

Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti. Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðilinn DV sem bætist við Mannlíf sem hafa staðið á bakvið Þvottahúsið og nú Alkastið síðan að Marta á Smartland kanselaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum.Kannabis, sveppir, fljúgandi furðuhlutir, swingmenningin, butplugs, slaufun og margt fleyrra í þessum þætti.

Om Podcasten

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.