Svipmynd: Rúnar Rúnarsson leikstjóri

Víðsjá - A podcast by RÚV

Categories:

Það má segja að stuttmyndin Síðasti bærinn hafi sett ákveðin tón í höfundaverk Rúnars Rúnarssonar leikstjóra sem hefur ómað síðan. Kvikmyndir Rúnars eru oftar en ekki teknar á filmu, þær eru ljóðrænar þroskasögur um fólk á tímamótum, þar sem umhverfið leikur stórt hlutverk. Þetta eru stórar sögur sem fjalla um það smáa í tilverunni. Hann komst inn í Danska kvikmyndaháskólann með Síðasta bænum og hún ferðaðist um heiminn, hlaut fjölda alþjóðlegra verðlauna og var þar að auki tilnefnd til Óskarsverðlauna. Tvær stuttmyndir sem einnig nutu mikilla velgengni fylgdu í kjölfarið og árið 2011 frumsýndi Rúnar Eldfjall, sína fyrstu mynd í fullri lengd. Þrestir og Bergmál komu í kjölfarið og velgengni Rúnars á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum hélt áfram. Rúnar frumsýnir sína nýjustu kvikmynd Ljósbrot á Cannes á næstu dögum en hún er opnunarmynd í Un Certain Regard-flokki hátíðar­inn­ar, þar sem kvik­mynd­um sem sýna list­ræna djörf­ung er hampað. Rúnar verður gestur Víðsjár í Svipmynd dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.