Svipmynd af myndlistarmanni / Ragna Róbertsdóttir
Víðsjá - A podcast by RÚV
Categories:
Ragna Róbertsdóttir er fædd í Reykjavík 1945. Hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum og í Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi en hefur búið og starfað jöfnum höndum í Reykjavík, Arnarfirði og Berlín. Ragna er hjá Parsons Projects gallerý í Berlín og i8 hér heima. Ragna er einn fremsti listamaður landsins og hefur sýnt víða um heim. Hún hefur verið tilnefnd til hinna mikilsvirtu Carnegie-verðlaunanna og nýverið hlaut hún Gerðarverlaunin en þau eru veitt listamanni fyrir ríkulegt framlag til höggmynda- og rýmislistar á Íslandi. Í verkum hennar eru náttúruleg efni, þá sérstaklega jarðefni ráðandi og kannast eflaust margir við torfrúllur hennar, sagaða hraunið, þornað salt á gleri og vikurinn á veggjum. Ragna hefur einnig, ásamt eiginmanni sínum Pétri Arasyni sem nýverið féll frá, verið stórtækur listaverkasafnari í gegnum tíðina. Hún er ein af stofnendum Gallerí Langbrókar en einnig rak hún ásamt Pétri sýningarrými bæði í Reykjavík og Berlín. Safn þeirra hjóna er það stærsta í einkaeigu á Íslandi og jafnframt eitt stærsta safn erlendrar samtímamyndlistar á landinu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson