Myndlist á heimilum, Aðventa, Arnaldur Indriðason
Víðsjá - A podcast by RÚV
Categories:
Það hefur eflaust ekki farið frá hjá mörgum bókmenntaunnendum að Arnaldur Indriðason er ofarlega, ef ekki efst á flestum metsölulistum bókaverslana þessi dægrin. Þetta er orðin eins konar ný-jóla-hefð hér á landi en í Víðsjá í dag ætlum við aðeins að velta vöngum yfir höfundinum og spyrja spurningar sem legið hefur í loftinu undanfarin ár - er Arnaldur Indirðason Arnaldur Indirðason? Gæti hann verið einhver annar? Nánar um það í þætti dagsins. Fyrir skemmstu kom út bókin ?Myndlist á heimilum? þar sem hægt er að skyggnast inn á íslensk heimili þar sem myndlist gegnir stóru hlutverki. Það má segja að heimilin endurspegli ákveðin tíðaranda og smekk og einmitt það og margt fleira ræðum við við einn af höfundunum, Olgu Lilju Ólafsdóttur, sem einnig er einn af stofnendum Y gallerís í Kópavogi. Og Trausti Ólafsson rýnir í Aðventu, í uppsetningu Rauða sófans í Borgarleikhúsinu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.