Jötnar hundvísir, Bókin bókauppboð, Móðurást: Draumþing/rýni, Magnea Guðmundsdóttir

Víðsjá - A podcast by RÚV

Categories:

Heimildirnar sem við eigum um norræna goðafræði eru yfirleitt hliðhollar ásum, þeir eru fulltrúar þess ákjósanlega, skipaninni. Í þeirri tvíhyggju uppstillingu eru jötnarnir þá hálfgerð skrýmsli og það sem þeir standa fyrir jafnvel óæskilegt. En myndin er ekki svo einföld, því jötnar eru í raun vitrir, fjölkunnugir og ríkir. Ingunn Ásdísardóttir skoðar norrænu sagnirnar út frá sjónarhorni jötna í nýútkominni bók sem ber titilinn Jötnar hundvísir og verður gestur þáttar í dag. Við sláum einnig á þráðinn til Eiríks Ágústs Guðjónssonar í fornbókaversluninni Bókinni og heyrum af bókauppboði. Sölvi Halldórsson bókarýnir verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni rýnir Sölvi í Móðurást:Draumþing eftir Kristínu Ómarsdóttur og við fáum að auki hugleiðingu frá Magneu Guðmundsdóttur arkitekt, sem veltir fyrir sér mótun staðaranda í samhengi við nýtilkominn miðbæ Selfoss.