Hjartabrostnar borgir og svipmynd af leikmyndahönnuði

Víðsjá - A podcast by RÚV

Categories:

Svipmynd dagsins verður af Ilmi Stefánsdóttur sem er leikmyndahönnuður og myndlistarmaður. Hún ólst upp á frjóu og skapandi heimili og kviknaði áhugi hennar á listum snemma. Fyrir henni lá það nokkuð beint við að nema myndlist og hóf hún námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands snemma á 10 áratug síðust aldar og lauk svo meistaranámi í myndlist frá Goldsmiths College í London árið 2000. Ilmur hefur haldið fjölda einka- og samsýninga og lagði stund á gjörningalist hérlendis og erlendis. Í list sinni skoðar hún hið óvænta, til dæmis með því að útbúa hljóðfæri úr straubretti eða ryksuga á sér eyrað. Hún er hluti af sviðslistahópnum Common Nonsense sem unnið hefur töluvert með stökkbreytta hluti og hegðun fólks. Hún segir leikhúsið nefnilega snúast um fólk. Í þættinum heldur Jakub Stachowiak, rithöfundur, áfram esseyjuseríunni Hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi að taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. En nú ferðast hann með okkur til borgarinnar Napólí þar sem hann reynir að dreifa huganum frá sorginni.