Hallgerður Hallgrímsdóttir, Múkk, Rushdie, tónlistarrýni
Víðsjá - A podcast by RÚV
Categories:
Í ár eru liðin 350 ár frá dánardegi Hallgríms Péturssonar og til að heiðra minningu hans verður boðið upp á veglega hátíðardagskrá í kirkjunni fram að áramótum. Liður í þessum hátíðahöldum er myndlistarsýning Hallgerðar Hallgrímsdóttur sem opnaði síðastliðinn sunnudag. Hallgerður vinnur ljósmyndaverkin út frá lífi og list Hallgríms en rauði þráðurinn er hversdagsleikinn með öllu sem hann inniheldur. Halla Harðardóttir ræðir við listakonuna og Irmu Sjöfn Óskarsdóttur sóknarprest í þætti dagsins. Við hugum aðeins að alþjóðlegu Bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness, sem verða veitt rithöfundinum Salman Rushdie við hátíðlega athöfn í Háskólabíói á morgun og í þættinum verður líka boðið upp á tónlistarrýni í fyrsta sinn eftir þó nokkuð hlé. Arndís Björk Ásgeirsdóttir segir okkur af upplifun sinni af Wagnerveislu Ólafs Kjartans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og afmælistónleikum Kammersveitar Reykjavíkur. Arndís Björk er hlustendum að góðu kunn, en færri kannski vita að hún hóf feril sinn í útvarpi sem tónlistarrýnir Víðsjár árið 1997, að beiðni upphafsmanns þáttarins, Ævars Kjartanssonar. En við hefjum þáttinn á ljóðum. Ljóðasenan á Íslandi er sprúðlandi og von á góðu ljóðahausti. Við boðuðum tvö ung skáld úr ljóðakollektívinu Múkk í hljóðstofu, til þess að ræða ást sína á ljóðum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir