GJörningalist á stríðstímum, Svipmynd af Magnúsi Jóhanni

Víðsjá - A podcast by RÚV

Categories:

Magnús Jóhann Ragnars­son, píanó­leikari, tón­skáld og upptökustjóri, hefur tekið þátt í að semja og útsetja margt af því vin­sælasta í ís­lensku popp­tón­listar­senunni síðustu ár. Hann hefur gefið út þrjár sólóplötur, Pronto, Without listening og Skissur, og auk þess plötuna Án tillits í samstarfi við Skúla Sverrisson bassaleikara og Tíu íslensk sönglög í samstarfi við GDRN. Þar að auki hefur hann samið tónlist leikhús og kvikmyndir og leikið inn á fjölmargar plötur annara listamanna og stýrt upptökum þeirra. Magnús Jóhann verður gestur okkar í svipmynd dagsins. En við hefjum þáttinn á pistli frá Viktoriu Bakshina, sem hefur undanfarnar vikur flutt pistla um listsköpun á stríðstímum. Að þessu sinni fjallar Viktoria um gjörningalist. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.