Ensamble Adapter, Cage og Takemitsu, Djazzdagurinn, heimspekipistill

Víðsjá - A podcast by RÚV

Categories:

Næstkomandi sunnudag mun kammerhópurinn Ensamble Adapter frumflyjta tónverk eftir John Cage og Toru Takemitsu í Hörpu, tónverk sem kallast Vis á vis, og sem hefur verið týnt frá 1986. Eftir ævintýralega rannsóknarvinnu þeirra Gunnhildar Einarsdóttur hörpuleikara og Matthias Engler slagverksleikara, þar sem viðtöl og bókasafnsgrúsk í Bandaríkjunum, antíkbúð í Japan og plötusafn frá Reykjavík koma við sögu, hefur hópnum tekist að endurskapa verkið. Meira um það í þætti dagsins. Sigmar Þór Matthíasson, Óskar Guðjónsson og Rebekku Blöndal kom í heimsókn og segja frá Alþjóðlega djazzdeginum sem haldinn verður hátíðlegur um alla borg á morgun. Freyja Þórsdóttir fjallar um tengsl við menningu og náttúru í heimspekipistli.