Viðar Halldórsson

Svona er þetta - A podcast by RÚV

Categories:

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er?Viðar Halldórsson, prófessor í Félagsfræði við Háskóla Íslands. Viðar hefur í rannsóknum sínum beint sjónum að ýmsum hliðum íþrótta, meðal annars klefamenningunni svokölluðu sem hefur verið mikið til umræðu nú í kjölfar þess að Knattspyrnusamband Íslands var sakað um að bregðast ekki við ábendingum um ofbeldi og kynferðisbrot af hálfu núverandi og fyrrverandi landsliðsmanna. Rætt er við Viðar um mál Knattspyrnusambandsins, klefamenninguna, afreksstefnuna og hvernig árangur er skilgreindur í íþróttastarfi.