3. Baugar fortíðar
Sandkorn - A podcast by Stúdering á Svörtu söndum
Categories:
Leikstjórinn kallar þetta ‘Stóra lögguþáttinn’ og lýsir þessu sem brúarþætti. Hér eru eftirmálar teitisins, saga Lenu, kærastinn Stephen og óvæntur stjúpi í brennidepli, en dökkir baugar og fortíðardraugar eru allsráðandi í óvissunni framundan og að baki. Ýmist kraumar enn undir yfirborðinu enda skiptast helstu persónur nú á að fá sér kríu á meðan beðið er eftir óhjákvæmilegum suðupunkti í sakamáli og einkamálum. Þáttastjórnendur gramsa enn fremur í glundroðanum á Glerársandi og í hvað siglir hjá bæjarbúum. Samlíking Anítu og Elínar er tekin á nýtt stig og tekur Tómas stöðuna á því hjá hverjum rauðsíldarfáninn er staddur að sinni. Baldvin ræðir einnig gildrur í handritum lögguþátta og reynt er að komast til botns á því hvers vegna þriðji þáttur skoraði sérstaklega hátt hjá Bretum. Efnisyfirlit: 00:00 - Intro-lagið er stutt, engar áhyggjur 00:30 - Lognið á undan storminum og alvöru morðsaga 03:10 - Full á vakt, stjúpinn og niðurtúrinn á eftir partíið 07:00 - Stóri lögguþrátturinn og Stephen 14:00 - Allir swinga á Glerársandi 16:10 - Rauðsíldarfáninn 22:15 - Brúin á milli 29:11 - Hver er hreimurinn? 31:00 - Úr catering á skjáinn 32:45 - Allir eru að fá sér lúr