2. Brostu bara og haltu partí!

Sandkorn - A podcast by Stúdering á Svörtu söndum

Categories:

Í öðrum þætti Sandkorna eru rauðsíldarpælingar teknar á næsta stig á meðan andrúmsloftið á Glerársandi kraumar enn fremur með partíhaldi í nánd. Baksögur fara hægt og bítandi að skýrast en þó eru merki um að aðalsöguþráðurinn eigi enn eftir að skýrast.  Tómas og Baldvin velta fyrir sér partísenur, svokallað „exposition“ í handritsgerð og gildrur slíkra reglna. Einnig bregða fyrir umræður um óséðar tæknibrellur, litamótíf, gegnumgangandi þemu og fleira sem gæti eða gæti ekki reynst mikilvægara eftir því sem lengra á líður. Efnisyfirlit: 00:00 - Töff lag 00:40 - Óséðar brellur 03:03 - Hvar vorum við? 06:40 - Hvað er að búbbla? 09:58 - Dóra og graða bisnesskonan 13:10 - Móðir, helvíti 15:02 - Bjargvættur bæjarins 18:35 - En hvað með Gústa? 20:33 - Hvílíkt baðkar 22:10 - Algjört partí 27:37 - Hver í fjandanum er Davíð? 29:09 - Brostu og skvísaðu þig í gang 33:33 - Gott exposition og löggutal 39:52 - Ræðan mikla