1. Úr fjöru í alvöru

Sandkorn - A podcast by Stúdering á Svörtu söndum

Categories:

Baldvin Z og Tómas Valgeirsson grandskoða sjónvarpsseríuna Svörtu sanda í sameiningu. Tómas skoðar hvern þátt út frá sjónarmiði neytandans og spyr leikstjórann spjörunum úr og spyr leikstjórann spjörunum úr; stúdering beint frá áhorfanda til skaparans.  Sýningar á þáttunum hófust á Stöð 2 á jóladag, 25. desember. Baldvin Z leikstýrir fyrir Glassriver, en auk hans skrifa Aldís Amah Hamilton og Ragnar Jónsson handritið. Aldís fer sjálf með aðalhlutverkið í þáttunum. Með önnur helstu hlutverk fara Þór Tulinius, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ævar Þór Benediktsson og Kolbeinn Arnbjörnsson.  Í fyrsta þætti Svörtu sanda kynnumst við helstu persónum sögunnar; Anítu, Elínu, Salómon, Fríðu, Gústa og Ragnari.  Til að gefa tóninn á upphafi þáttanna og þeirra framvindu, ræðir Baldvin hér ýmsar upphafssögur, hvernig Tvídrangar (með mömmu) mótuðu hans kvikmyndaferil, hvernig tilurð Svörtu sanda og hljóðheimar þeirra lýsa sér, en þess að auki ræðir leikstjórinn um rassamælingarsenu sem að öllum líkindum brýtur blað í geira íslenskra morðsagna - og sé jafnvel fyrst sinnar tegundar.  Þá koma einnig upp umræður um táknmyndir, falin páskaegg, vísbendingar og helstu uppskriftir rauðsílda í morðsögum. Efnisyfirlit: 00:00 - Viti menn, intro-lag... 00:40 - Tvídrangar með mömmu 03:05 - Bíó erfiðara en sjónvarp 08:20 - Morðsería með öðrum vinkli 09:21 - Tónninn sleginn 13:28 - Okkar Laura Palmer á fyrstu 8 mínútunum 14:43 - Óeðlilega eðlilegt fólk 18:33 - Ráðgjafinn Ragnar 20:04 - Sólósöngur og spriklandi rauðsíld 25:10 - Aníta og útlitið 26:55 - Táknmyndir, litir og smáatriði 29:00 - Gústi sendir Like þumal 33:30 - Keimlíkt Kötlu, þó sterkara 34:04 - Fríða og dauðsföll útlendinga 35:44 - Hvorn myndirðu: Tomma eða Salómón? 38:40 - Þögn í búri Elínar 40:19 - Fyrstu viðbrögð og almenn samsetning 41:30 - Þemu, fjólublár og söguleg rassamæling 51:00 - Úr fjöri í alvöru 56:00 - Uppstillingar persóna, kameru, en hvað svo?