Birkiyrki, fátækt og flækjustig þéttbýlis

Samfélagið - A podcast by RÚV

Categories:

Í hartnær hálfa öld hefur Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur unnið að kynbótum á íslensku ilmbjörkinni – með góðum árangri: birkiyrki úr hans smiðju hefur meðal annars verið flutt til ræktunar í birkilandinu mikla Finnlandi. Þorsteinn heldur fyrirlestur um kynbætur á birki á fræðslufundi hjá Skógræktarfélagi Íslands í kvöld – og verður gestur Samfélagsins hér á eftir og segir frá kynbótum sínum og rannsóknum. Hvernig gengur okkur að takast á við fátækt á Íslandi? Þetta er spurning sem Halldór Sigurður Guðmundsson og Kolbeinn Stefánsson, dósentar, kennarar og rannsakendur við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, vörpuðu fram á félagsráðgjafaþingi síðasta föstudag. Samfélagið var á þinginu og við ræddum við þá félaga um fátækt og félagsráðgjöf. Og í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og föstum pistlahöfundi Samfélagsins.