Á vaktinni með innlagnastjórum á Landspítala
Samfélagið - A podcast by RÚV

Categories:
Í Samfélaginu í dag förum við á vakt á Flæðisdeild Landspítalans og köfum ofan í flæðið sem er forsenda þess að spítalinn virki - og hefur sjaldan verið þyngra en nú. Hvað er að frétta af þessum títtnefnda fráflæðisvanda? Hvað gerir starfsfólkið þegar þetta mennska flæði er nánast stopp og hvað gerist þegar stíflurnar bresta? Við fylgjumst sérstaklega með Kristinu Kötlu Swan og Þórdísi Friðsteinsdóttur, innlagnastjórum sem eru reyndir hjúkrunarfræðingar en líka eins konar lagerstjórar. Þær standa í ströngu allan daginn við að reyna að finna pláss fyrir veikt fólk - með misjöfnum árangri. Frá þessum sjónarhóli fær spítalinn á sig svolítið verksmiðjukenndan blæ - en samt snýst þetta alltaf um fólk.