#54 - Bjart er yfir birtingum - Bjartur Ari Hansson
Þrír á stöng - A podcast by Þrír á stöng

Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.