Mannát og Armie Hammer

Poppsálin - A podcast by Poppsálin

Í þessum þætti verður farið í nýlegt mál, en The Social Network leikarinn Armie Hammer hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið vegna skilaboða sem hann hefur sent til nokkurra kvenna. Hann segist vera mannæta og vilji borða þær. Nokkrar hafa stigið fram og sagt frá reynslu sinni af honum og ofbeldinu og verður farið í það í þættinum. Einnig er fjallað um kynlífstengdar raskanir sem gætu tengst þessu máli og mögulegar orsakir þeirra.