Bríet - Frosið hjarta verður hlýtt

Poppsálin - A podcast by Poppsálin

Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við yndislegu söngkonuna Bríeti. Ástarsorgin, uppgjörið, textarnir og tónlistin, útlitspælingar og álit annarra. Einnig er farið í það af hverju við hlustum á sorglega tónlist þegar okkur líður illa. Af hverju veljum við að hlusta á sorgleg ástarlög þegar við erum í ástarsorg? Hljóðgæðin eru ekki 100% þar sem þátturinn var tekinn upp í gegnum Zoom en aulalegur aðdáendatónn Elvu og einlægni Bríetar bætir vonandi upp fyrir það. ...