Gesta Pepp fundur tvö
Pepp Fundir - A podcast by FitbySigrún
Categories:
Arna kom með gesta innlegg og deilir með okkur þessum pepp fundi: Hvernig talar þú við þig? Hvernig hugsar þú um þig? Gæti verið að þú sért ómeðvitað að skemma fyrir þér með þinni orðræðu í þinn garð? Við líðum oft í gegnum daginn og gagnrýnum allt sem við gerum og höldum að það hafi engin áhrif eða jafnvel að við eigum það skilið. Það er bara alls ekki þannig því innri orðræða er gríðarlega mikilvæg, hún verður að ytri gjörðum.