#5 Hrefna Sif Jónsdóttir - Ein áhrifamesta konan í tónlistarbransanum

Einmitt - A podcast by Einar Bárðarson

Categories:

Hrefna Sif Jónsdóttir er líklega ein valdamesta konan í íslensku tónlistarlífi. Hún lætur þó lítið fyrir sér fara og fer vel með það það vald. Hún er framkvæmdastjóri Tix miðasölu og ekki að ósekju því þrátt fyrir að vera ung á hún að baki mikla reynsla af miðasölubransanum.Hún vann í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, allt frá opnun þess árið 2011 en þar starfaði hún síðast sem miðasölustjóri. Í  mars 2017 þegar hún réð sig sem framkvæmdastjóra Tix.is sem er langstærsta miðasölugátt landsins og í raun engir alvöru samkeppnisaðilar á markaðnum en það þýðir þó ekki að markaðurinn sé án áskorunar fyrir Tix.is. Síðasta ár hefur verið hlaðið áskorununum þar sem allt tónleika og tónlistarlíf hefur nánast verið stopp. Hrefna ræðir þessar áskoranir við Einar Bárðarson í fimmta þættinum að hlaðvarpi Einars, Öll trixin.