HM Handkastið - Króatíu leikurinn brotinn til mergjar!

Handkastið - A podcast by Handkastið

HM er farið af stað og Handkastið fylgist með strákunum okkar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru þeir Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH og Þorgrímur Smári Ólafsson leikmaður Fram í Olís-deild karla. Í þættinum fórum við yfir fyrsta leik Íslands á HM gegn Króatíu, fórum yfir frammistöður einstakra leikmanna og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Spáni. RúnarsKára hornið var á sínum stað og síðan gáfum við glaðninga í boði Coolbet auk þess sem HM lagið var spilað í lok þáttar. Nýr Final4 leikur í samstarfi við Coolbet var kynntur til leiks og hvetjum við hlustendur til að taka þátt í þeim leik. Eina sem þú þarft að gera er að stofna aðgang á Coolbet, veðja á það hvaða þjóð verður Heimsmeistari (áður en riðlakeppnininni lýkur) og þeir sem spá réttum Heimsmeistara eru komnir í pott sem dregið verður úr eftir að HM lýkur.