HM Handkastið - Gatorade bræður fara yfir HM, einkunnargjöf og risa Olís-deildarpakki

Handkastið - A podcast by Handkastið

Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni voru gestir þáttarins fyrrum þáttastjórendur Gatorade sem var á dagskrá Áttunar ekki fyrir svo löngu síðan. Hermann Árnason íþróttaspekúlant og Davíð Örn Atlason sem kemur úr mikilli handboltafjölskyldu voru gestir þáttarins. Í þættinum fórum við yfir lokaleik Íslands á HM, gáfum íslensku landsliðsmönnunum einkunnir fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi. Í seinni hluta þáttarins fórum við yfir síðustu leiki og stöðuna í Olís-deild kvenna og vorum einnig með slúðurpakka fyrir Olís-deild karla sem fer aftur af stað laugardaginn 2. febrúar. Davíð Örn Atlason gaf síðan Rúnars Kárasonar treyju sem við ætlum að gefa á Facebook og Twitter.