Handkastið - Rúnar Sigtryggs um landsliðið, ferilinn, Pascal Hens og nærbuxnaupphitun

Handkastið - A podcast by Handkastið

Gestur þáttarins að þessu sinni var hinn þrautreyndi þjálfari og fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, Rúnar Sigtryggsson sem í dag er þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild karla. Rætt var um landsliðið, kynslóðaskiptin, athyglisverðan feril Rúnars sem hófst í Þorpinu fyrir norðan. Á ferlinum lék Rúnar til að mynda með einum besta handboltaleikmanni sögunnar, Talant Dujshebaev. Einnig völdum við Coolbet-leikmann 6. umferðar auk þess að draga út vinningshafa í Final4 gjafaleiknum okkar í boði Coolbet. - Ótrúlegur efniviður að koma upp í íslenskum handbolta - Leikmanna- og þjálfaraferill Rúnars - Hvernig var að þjálfa Pascal Hens? - Þurfti að hita upp fyrir einn leik á nærbuxunum - Hvernig er að þjálfa syni sína? - Mýrin er enginn heimavöllur - Vill Rúnar skotklukku í handbolta? - Gæðin í Olís-deildinni miðað við Þýskaland - Rúnar svaraði spurningum hlustenda - Coolbet leikmaður 6. umferðar - Dregið í Final4 leiknum