Handkastið - HM strákarnir heitir, Fram í Fuck it mode og Sverre í viðtali

Handkastið - A podcast by Handkastið

Í þættinum fórum við yfir 14. umferðina í Olís-deild karla en gestur þáttarins var Ingvar Örn Ákason aðstoðarþjálfari Fram sem eru í bullandi fallbaráttu eftir tap gegn KA um helgina. Við hringdum síðan norður og heyrðum í Sverre Jakobssyni sem var rekinn sem þjálfari Akureyrar í upphafi árs en er nú kominn í þjálfarateymi KA. Einnig völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar, fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna og stuðlabergið fyrir næstu leiki kvennamegin.