Handkastið - Einar Andri um A & U21 landsliðið, The class of '90 og The DreamTeam

Handkastið - A podcast by Handkastið

Gestur þáttarins í Handkastinu af þessu sinni er Einar Andri Einarsson þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla og nýráðinn þjálfari U-21 árs landsliðs karla. Í þættinum ræddi Einar Andri um farsælan leikmannaferil sinn sem endaði fyrr en áætlað var og í kjölfarið tók hann þá ákvörðun að verða þjálfari. 25 ára tók hann við þjálfun hjá meistaraflokki FH. Í þættinum ræddum við einnig um leik Íslands og Tyrklands í undankeppni EM 2020 og tvo vináttulandsleiki U-21 árs landsliðsins gegn Frökkum um helgina. - Fagmannleg frammistaða í Ankara - Frábær sigur U-21 árs landsliðsins gegn stjörnuprýddu liði Frakka - Slavko Bambir sá eitthvað í Einari Andra sem þjálfara - Tók ungur við efnilegu liði FH sem var í krísu - FH loksins Íslandsmeistarar tímabilið 2010-2011 - Viðskilnaðurinn við FH - The class of '90 - Hvar væri Björn Daníel sem handboltamaður í dag? - Tók við nýliðum og tapaði úrslitaeinvíginu sama ár - Afhverju er Böðvar Páll ekki orðinn næsti Mikkel Hansen? - Er Afturelding "næstum" því lið? - Spurningar úr sal - Draumalið leikmanna sem Einar Andri hefur þjálfað - Aron Pálmars sá besti sem Einar Andri hefur þjálfað - Fórum yfir stuðlabergið fyrir næstu umferð í Olís-deild kvenna