Nútímafjölskyldur og lesbían sem missti forræðið

Brjóstagjöfin gengur vel hjá Móeyju Pálu en það var ekki raunin hjá Möggu Pálu sem gat einungis haft Brynju dóttur sína á brjósti í 3 vikur. Það reyndist ungu móðurinni mun erfiðara en hún vildi viðurkenna en hafði sáralítil áhrif á dótturina. Það reyndist þessari ungu móður líka erfitt að horfast í augu við það að hún varð ástfangin af konu en það erfiðasta af öllu var að missa forræði dóttur sinnar vegna samkynhneigðarinnar. Hversu sterk eru tengsl foreldra við börnin sín og hvernig lifa fjarbúandi fjölskyldur af aðskilnaðinn? Katla sér um kynningu og lokaorð að vanda af sinni alkunnu snilld.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]ðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]

Om Podcasten

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.