Hlutir kosta peninga

Ömmgurnar sátu í glænýju heimastúdíói og tóku upp þátt vikunnar í ,,heimakastinu”. Þættirnir eru orðnir 44 og brátt verður komið ár frá því hlaðvarpið Fjölskyldan ehf fór í loftið. Í tilefni þess verða m.a. gjafaleikir á Instagram og Facebook síðum Fjölskyldunnar ehf. Magga Pála og Móey Pála ræddu fátækt barna og ungmenna á Íslandi og muninn á fátækt og blankheitum. Einnig ræða þær hvernig er hægt að jafna aðstöðumun barna og hvetja hvern og einn að finna leið. Öll getum við verið gætin á okkar vakt og tekið raunveruleikapróf reglulega með börnum. Katla fer með lokaorð og spjallar um peninga og skólabúninga við ömmu sína.Fjölskyldan ehf á facebookFjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]ðilar þáttarins eru Krumma leikfanga- og leiktækjaverslun og barnavöruverslunin Regnboginn. Fjölskyldan ehf á facebook Fjölskyldan ehf á InstagramNetfang þáttarins: [email protected]

Om Podcasten

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.