Föðurhöfnun, fjölskyldugalskapur og fall á smíðaprófi (næstum).

Adeline Brynja er enn að vinna í því að taka pabba sinn í sátt og fjölskyldan litla leggst á eitt til að styrkja tengslin. Ömmgurnar standa sig vel í síma-afvötnuninni og finna breytingar með minni símanotkun. Amman setti nýtt met í einkunnum en hún hefur ekki fengið svona lágt í prófi áður, hvernig tekst kona á við það? Spurningarnar halda áfram að berast og í þættinum fór áherslan á systkinaerjur, ofurhetjur, vetrarfrí og þreytupirring á stórum heimilum.

Om Podcasten

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.