Influence - hvaða sex lögmál hafa áhrif á hegðun okkar?

Influence - the Psychology of Persuasion kom fyrst út árið 1984 var svo endurútgefin árin 1994 og 2006. Í ár 2021 verður bókin svo endurútgefin í enn stærri útgáfu þar sem höfundur bætir við einu lögmáli til viðbótar sem hann nefnir Unity. Höfundurinn Robert Caldini er doktor í sálfræði. Í þessari bók er farið í gegnum sex lögmál sálfræði og mannlegrar hegðunar og hvernig þau hafa áhrif á okkur. Þetta er ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa helst sem börn svo við...

Om Podcasten

Firmað ritar fjallar um bækur sem breyttu heiminum og um leið hafa haft áhrif á umsjónarmenn. Kjartan Örn Sigurðsson og Kolbeinn Marteinsson kynntust í Háskóla Íslands í kringum aldamótin þar sem þeir námu stjórnmálafræði. Eftir HÍ fóru þeir í framhaldsnám, viðskipti og í að þróa sinn starfsframa. Nú sem miðaldra karlar hafa þeir snúið bökum saman reynslunni ríkari að eigin sögn. Hér ræða þeir til skiptis bækur sem hafa gagnast þeim undanfarin 20 ár, í viðskiptum, rekstri, einkalífi eða einfaldlega veitt þeim innblástur og gleði. Firmað ritar er því fyrir öll þau sem vilja bæta sig og vonandi um leið læra eitthvað nýtt. Athugið að þættirnir eru gefnir út þegar tími gefst.