Syrgjandi foreldrar Sigurðar Kristófers
Þetta helst - A podcast by RÚV
Categories:
Á undanförnum dögum hafa björgunarsveitir staðið fyrir fjáröflun með sölu á Neyðarkallinum. Salan í ár vakti sérstaklega mikla athygli og seldist kalllinn upp víðast hvar um landið. Neyðarkallinn í ár er nefninlega tileinkaður Sigurði Kristófer McQuillan Óskarssyni. Hann lést aðeins 36 ára gamall í slysi við björgunaræfingar í Tungufljóti í fyrra. Sigurður var vinamargur og kröftugur björgunarsveitarmaður sem var formaður í björgunarsveitinni Kyndli í Mosfellsbæ. Í þessum þætti ætlum við að ræða við fólkið sem fylgdi Sigurði í gegnum lífið og elskaði hann meira en allt. Foreldrar hans, þau Karin Agnes McQuillan og Óskar Ágúst Sigurðsson, bjóða okkur til sín á æskuheimili Sigurðar í Árbænum. Þar hittum við líka nána frænku hans, hana Auði Lorenzo. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
