Loksins, loksins, Bruggið hið fyrsta.
Bruggvarpið - A podcast by Bruggvarpið Bruggvarp
Categories:
Eftir áþreifanlega fjarveru strákanna vegan verkfalla, veirufaraldurs og tæknilegrar vankunnáttu er gerð önnur tilraun við það að hefjast handa. Hér hefst bruggið. Hér er ágætt að koma með disclaimer: EF þú hlustandi góður ert nýr að bruggi er þetta ekki þátturinn fyrir þig. Þ.e. þátturinn til að læra nokkurn skapaðan hlut. Kannski er ágætt að hlusta á þennan þátt sem víti til varnaðar. En ýmislegt er smakkað, m.a. Linda collab RVK brewing og Víking, Páskagull og sitthvað fleira. Svona smá yfirlit fyrir þá sem vilja fletta: 00:00 – Inngangur 09:25 - Brugg Hefst – Mesking að hitastigi 20:19 - Mesking hefst 23:58 – Stress moment – Allt nánast farið til andskotans 26:32 - Smá bjórsmakk og Nostalgía – Miller smakkaður 33:07 – Skolun? 35:32 – Meskitunna hífð uppúr 39:39 – Meskitunna komin uppúr og búið að skola 43:27 – Verið að keyra upp suðu. Hvað með Humlana? 48:10 - Fyrsti skammtur kominn í. 49:05 – Suða hálfnuð eða svo 55:18 – 2/3 suðunnar lokið, skammtur 2 af humlum settur útí. 56:52 – Virtinn kældur – Smá smakk meðan beðið er. 1:03:08 – Stefán hellir eftir kælingu í gerjunarílát 1:04:12 – Strákarnir uppgötva að þeir þurftu að pitcha gerið. 1:07:35 – Uppgjör í stúdíói daginn eftir.
