#226 Bransaspjall með Óskari Axels
Bíóblaður - A podcast by Hafsteinn Sæmundsson - Wednesdays
Categories:
Óskar Þór Axelsson er einn af okkar farsælustu kvikmyndagerðarmönnum. Hann hefur leikstýrt sjónvarpsseríum og kvikmyndum á borð við Svartur á leik og Ég man þig. Óskar var að gefa út sína nýjustu kvikmynd, stórmyndina Napóleonsskjölin, en myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Arnald Indriðason. Óskar kíkti til Hafsteins og ræddi meðal annars Napóleonsskjölin, hvernig iðnaðurinn hefur breyst með komu Netflix, Goodfellas og Fargo, hvernig hann undirbýr sig fyrir tökur, genre myndir, hans kenning á því af hverju Top Gun: Maverick varð svona gríðarlega vinsæl og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.