10 bestu / Bjarni Hafþór Helgason S8 E6

Bjarni Hafþór Helgason er mikill sögumaður. Hann kann að segja sögur og var faðir hans slíkur sögumaður einnig.  Ég náði Bjarna þegar hann var staddur á Akureyri með ,,sögustund" sem ég kallaði uppistand af tveimur kvöldum af troðfulli húsi gesta sem vart náðu að draga andann vegna hláturs.  Hann ólst upp á Húsavík en flutti til Akureyrar 17 ára gamall. Hann rekur söguna alla og hann kann svo sannarlega að gera það vel.  Hann spilar fyrir okkur sín 10 bestu lög og við kryfjum hvert lag nánast sem hann hefur samið. Það á eftir að koma þer á óvart hvað hann á mörg af þessum lögum sem við heyrum reglulega.  Takk fyrir frábært spjall Bjarni Hafþór og gangi þer vel með barnabókina sem er væntanleg eftir nokkrar vikur ! Takk fyrir að hlusta á 10 bestu :)

Om Podcasten

Allir þættirnir sem ég tek upp á sama stað undir þessu nafni. Takk fyrir að hlusta!